Yngri flokkar - Anton Frans, Sigurmundur Gísli, Heimir Halldór og Fannar Ingi á æfingar hjá HSÍ

16.des.2024  10:19

Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon, landsliðsþjálfarar U-17 hjá HSÍ, hafa valið Anton Frans Sigurðsson og Sigurmund Gísla Unnarsson til æfinga19.-22. desember, æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.

Haraldur Þorvarðarson, landsliðsþjálfari U-16 hjá HSÍ, hefur valið Heimi Halldór Sigurjónsson til æfinga 19.-22. desember, æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.

Stefán Árnason og Örn Þrastarson, landsliðsþjálfarar U-15 hjá HSÍ, hafa valið Fannar Inga Gunnarsson til æfinga 19.-22. desember, æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.

 

ÍBV óskar þeim innilega til hamingju með valið og óskar þeim góðs gengis!