Ágúst Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson, landsliðsþjálfarar U-19 hjá HSÍ, hafa valið Alexöndru Ósk Viktorsdóttur, Ásdísi Höllu Hjarðar og Birnu Maríu Unnarsdóttur til æfinga 19.-22. desember, æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.
Díana Guðjónsdóttir og Hilmar Guðlaugsson, landsliðsþjálfarar U-17 hjá HSÍ, hafa valið Agnesi Lilju Styrmisdóttur, Birnu Dögg Egilsdóttur og Klöru Káradóttur til æfinga 19.-22. desember, æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.
Ásdís Sigurðardóttir og Róbert Árni Guðmundsson, landsliðsþjálfarar U-16 hjá HSÍ, hafa valið Eddu Dögg Sindradóttur, Indu Marý Kristjánsdóttur og Kristínu Klöru Óskarsdóttur til æfinga 19.-22. desember, æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.
Hildur Þorgeirsdóttir og Sigríður Unnur Jónsdóttir, landsliðsþjálfarar U-15 hjá HSÍ, hafa valið Tönju Harðardóttur til æfinga 19.-22. desember, æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.
ÍBV óskar þeim innilega til hamingju með valið og óskar þeim góðs gengis!