Margrét Magnúsdóttir, þjálfari í Hæfileikamótun KSÍ, hefur valið Erlu Hrönn Unnarsdóttur, Hrafnhildi K. Kristleifsdóttur, Milenu Mihaela Patru, Siennu Björt Garner, Friðriku Rut Sigurðardóttur og Ísafold Dögun Örvarsdóttur á æfingu í Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir stúlkur á Suðurlandi.
Æfingin fer fram mánudaginn 9. desember nk í Lindex höllinni á Selfossi.
ÍBV óskar þeim innilega til hamingju með valið og góðs gengis!