Ágúst Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson landsliðsþjálfarar U-19 hjá HSÍ hafa valið Alexöndru Ósk Viktorsdóttur og Birnu Maríu Unnarsdóttur til æfinga 21.-24. nóvember nk. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.
Díana Guðjónsdóttir og Hilmar Guðlaugsson landsliðsþjálfarar U-17 hjá HSÍ hafa valið Agnesi Lilju Styrmisdóttur, Birnu Dögg Egilsdóttur og Klöru Káradóttur til æfinga 22.-24. nóvember nk. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.
Hildur Þorgeirsdóttir og Sigríður Unnur Jónsdóttir landsliðsþjálfarar U-15 hjá HSÍ hafa valið Tönju Harðardóttur til æfinga 22.-24. nóvember nk. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.
ÍBV óskar þeim innilega til hamingju með valið og góðs gengis!