Yngri flokkar - Edda Dögg, Ísey María og Kristín Klara í æfingahóp U-16 hjá KSÍ

29.okt.2024  13:51

Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U-16 kvenna hjá KSÍ hefur valið Eddu Dögg Sindradóttur, Íseyju Maríu Örvarsdóttur og Kristínu Klöru Óskarsdóttur í hóp leikmanna sem tekur þátt í æfingum U-16 kvenna dagana 11. og 12. nóvember nk. Æfingarnar fara fram í Miðgarði í Garðabæ.

 

ÍBV óskar þeim innilega til hamingju með valið og góðs gengis!