Frábær árangur ÍBV-stelpna

31.ágú.2023  13:43

 

Stelpurnar okkar í 5. og 4.flokki hafa náð einstaklega góðum árangri í sumar. Nú þegar líða fer að lokum tímabilsins eru A-lið beggja þessara flokka í keppni um íslandsmeistaratitil. 5.flokkur leikur gegn Víking í undanúrslitum þann 10. september kl 14:45. ÍBV vill hvetja alla þá sem hafa geta að mæta og styðja við stelpurnar okkar í þessum leik. Þær eiga það svo sannarlega skilið. 4.flokkur kvenna er kominn alla leið í 6-liða úrslit og þær mæta Breiðablik-2 miðvikudaginn 6.september kl 16:00 í Kópavogi. Við sendum þeim okkar allra bestu hugsanir fyrir þann leik.

Eitt er víst að framtíðin er björt.

Áfram ÍBV - Áfram stelpur!