Lokahóf 3.-5. flokks fór fram í gær í blíðskaparveðri, en áður höfðu farið fram lokahóf 6. og 7. flokks. Fótboltasumarið gekk mjög vel þrátt fyrir þær takmarkanir sem voru í gildi meiri hluta sumarsins. Iðkendur tóku þátt í Íslandsmótum og hinum ýmsu opnu mótum þar sem allir fengu verkefni við hæfi og gleðin var ríkjandi. Stúlkurnar í 4. og 5. flokk komust í undanúrslit í Íslandsmóti, sem verður að teljast mjög góður árangur, að vera meðal fjögurra bestu liða á landinu.
ÍBV þakkar iðkendum fyrir að vera í framlínunni fyrir félagið, framundan er kærkomið frí fyrir bæði þjálfara og iðkendur, við hlökkum til að sjá ferska fætur þegar æfingar hefjast aftur 20. október.
Eftirtaldir iðkendur fengu afhentar viðurkenningar í gær:
3. flokkur kvenna
Besti leikmaðurinn: Berta Sigursteinsdóttir
Framfarir: Rakel Perla Gústafsdóttir
3. flokkur karla:
Besti leikmaðurinn: Viggó Valgeirsson
Framfarir: Jón Ingi Elísson
4. flokkur kvenna:
ÍBV-ari: Birna Dís Sigurðardóttir
ÍBV-ari: Erna Sólveig Davíðsdóttir
Efnilegust: Elísabet Rut Sigurjónsdóttir
Framfarir: Agnes Lilja Styrmisdóttir
4. flokkur karla:
ÍBV-ari, eldra ár: Andri Erlingsson
ÍBV-ari, yngra ár: Anton Frans Sigurðsson
Efnilegastur, eldra ár: Kristján Logi Jónsson
Efnilegastur, yngra ár: Gabríel Snær Gunnarsson
Framfarir, eldra ár: Haukur Leó Magnússon
Framfarir, yngra ár: Ástþór Hafdísarson
5. flokkur kvenna:
ÍBV-ari: Tanja Harðardóttir
ÍBV-ari: Edda Dögg Sindradóttir
Framfarir: Petra Metta Kristjánsdóttir
Framfarir: Sóldís Sif Kjartansdóttir
Ástundun: Inda Marý Kristjánsdóttir
Ástundun: Ísey María Örvarsdóttir
5. flokkur karla:
ÍBV-ari, eldra ár: Erlendur Gunnlaugsson
ÍBV-ari, yngra ár: Aron Sindrason
Framfarir, eldra ár: Atli Sindrason
Framfarir, yngra ár: Aron Gunnar Einarsson
Ástundun, eldra ár: Tómas Sveinsson
Ástundun, yngra ár: Arnór Sigmarsson