Þóra Björg Stefánsdóttir, Ragna Sara Magnúsdóttir, Thelma Sól Óðinsdóttir, Elmar Erlingsson og Dagur Einarsson. Á myndina vantar Adam Smára Sigfússon.
Vegna samkomutakmarkana síðastliðið haust náðist ekki að halda lokahóf fyrir 3. flokka í knattspyrnu. Á dögunum voru afhentir bikarar sem átti að afhenda á lokahófinu, en þeir sem hlutu viðurkenningar voru:
3. flokkur karla
Besti leikmaðurinn: Elmar Erlingsson
Efnilegasti leikmaðurinn: Adam Smári Sigfússon
ÍBV-ari: Dagur Einarsson
3. flokkur kvenna var fáliðaður og spiluðu stelpurnar því með 2. flokki í sumar.
Besti leikmaðurinn: Þóra Björg Stefánsdóttir
Efnilegasti leikmaðurinn: Thelma Sól Óðinsdóttir
ÍBV-ari: Ragna Sara Magnúsdóttir