Davíð Snorri Jónasson landsliðsþjálfari U-17 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu valdi í dag Eyþór Orra Ómarsson í úrtakshóp sem kemur saman dagana 25-27.nóvember. Æfingarnar fara fram í nýju knattspyrnuhúsi FH og verða framkvæmdar hinar ýmsu mælingar á leikmönnum ásamt því að fara í gegnum taktískar leikæfingar.
Eyþór Orri sem hefur verið okkar efnilegasti leikmaður undanfarið er vel að þessu vali komin enda peyjinn farin að láta vel að sér kveða í meistaraflokki ÍBV.
ÍBV óskar Eyþóri Orra innilega til hamingju með þennan árangur