Nokkur praktísk atriði varðandi Þjóðhátíð

22.júl.2019  10:00

Nokkur praktísk atriði

  • Síðasti dagurinn til að sækja um lóðir í Dalnum er á fimmtudaginn kl. 10:00
  • Forsölulok eru fimmtudaginn 25. júlí
  • Staðfesta þarf lóðaumsókn inn á Dalurinn.is 26. til 28. júlí
  • Þriðjudaginn 30. júlí verða birtar nákvæmar staðsetningar á lóðum inn á dalurinn.is
  • Í ár verða bílapassarnir armbönd sem verða afhent þeim sem á þurfa að halda þriðjudag 30. og miðvikudag 31. júlí frá kl. 9:00-16:00. Nauðsynlegt er að þeir eldri borgarar og fatlaðir sem þurfa að nýta passana mæti sjálfir í Týsheimilið að sækja armböndin
  • Miðvikudaginn 31. júlí þá á að fara með súlurnar á eftirfarandi tímum

Reimslóð, Þórsgata, Týsgata  og Efri byggð – kl. 17:00

Ástarbraut, Veltusund og Klettar – kl. 17:45

Skvísusund og Lundaholur – kl. 18:30

Sigurbraut, Sjómannasund og Golfgata - kl. 19:15

Þeir sem tóku ekki frá lóð – kl. 20:00

 

Fyrri hluta miðvikudags verður lokað fyrir umferð í Herjólfsdal til að tryggja öryggi starfsmanna og gesta. Fimmtudag og föstudag verða búslóðaflutningar í Dalinn á eftirfarandi tímum.

Fimmtudag kl. 11:30 til 15:00 og 17:30 til 20:00

Föstudag kl.  9:00 – 11:30

Á öðrum tímum er Dalurinn lokaður fyrir bílaumferð.