Staða Íþróttastjóra ÍBV íþróttafélags laus til umsóknar
Íþróttastjóri er starfsmaður á skrifstofu ÍBV íþróttafélags og starfar undir framkvæmdastjóra. Íþróttastjóri skal á faglegan hátt stuðla að markvissri uppbyggingu á íþróttum á vegum ÍBV íþróttafélags, tryggja jafnræði í starfi, skipuleggja starfið og skilgreina markmið þess og móta þannig heildarstefnu sem hægt er að vinna skipulega eftir.
Helstu verkefni íþróttastjóra eru:
- Hefur yfirumsjón með öllu faglegu starfi félagsins í handbolta og fótbolta.
- Hefur yfirumsjón með skipulagningu á allri þjálfun yngri flokka frá grunni og að hún sé í samræmi við markmið og heildarstefnu félagsins.
- Sér til þess að æfingaáætlanir séu gerðar fyrir alla flokka og þar skal koma skýrt fram stefna og markmið hvers flokks og þetta kynnt iðkendum og foreldrum.
- Stuðlar að auknu upplýsingaflæði og samvinnu við foreldra.
- Stýrir álagi iðkenda félagsins.
Menntun og hæfniskröfur
- Háskólamenntun og/eða menntun sem nýtist í starfi.
- Þekking og reynsla af íþróttastarfi.
- Reynsla af stjórnun.
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Færni í mannlegum samskiptum, samskiptahæfni og samstarfsvilji.
- Góð íslensku- og enskukunnátta, í töluðu og rituðu máli.
- Haldgóð tölvukunnátta.
Umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá umsækjanda og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hörður Orri Grettisson framkvæmdastjóri ÍBV, hordur@ibv.is.
Umsóknarfrestur er til 26. júlí 2019.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknum má skila rafrænt á netfangið hordur@ibv.is.