Davíð Snorri Jónsson þjálfari U-16 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu hefur valið úrtakshóp sem æfir saman helgina 26.-28.okt í Reykjavík. Davíð valdi Eyþór Orra Ómarsson í hópinn en Eyþór hefur átt fast sæti þar undanfarið. Eyþór hefur átt afar farsælt ár en í sumar varð hann yngsti leikmaður frá upphafi til að leika í meistaraflokki í úrvalsdeild.
ÍBV óskar Eyþóri Orra innilega til hamingju með þennan árangur