Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U21 árs karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur gert eina breytingu á leikmannahópnum fyrir leikina á móti Eistlandi og Slóvakíu.
Varnarmaðurinn Sigurður Arnar Magnússon úr ÍBV hefur verið kallaður inn í hópinn í stað KA-mannsins Ásgeirs Sigurgeirssonar sem meiddist illa í leik KA gegn Val í Pepsi-deildinni í gær. Sigurður Arnar er nýliði en hann hefur átt góðu gengi að fagna með Eyjamönnum í sumar. Hann hefur komið við sögu í 17 leikjum liðsins í deildinni og skorað í þeim þrjú mörk.
Ísland mætir Eistlandi á Kópavogsvellinum á fimmtudaginn og leikur gegn Slóvakíu á Alvogenvellinum á þriðjudaginn í næstu viku.
ÍBV óskar Sigurði innilega til hamingju með þennan árangur