Þorlákur Árnason landsliðsþjálfari Íslands U-16 ára hjá KSÍ hefur valið úrtakshóp sem undirbýr sig fyrir leiki gegn Hong Kong og Kína í ágúst en leikirnir fara fram hér á landi. Hópurinn kemur saman til æfinga á Akranesi dagana 19-23.júní.
Eyþór Orri Ómarsson var valin frá ÍBV en Eyþór lék mjög vel með U-15 ára landsliðinu á dögunum gegn Svisslendingum.
ÍBV óskar Eyþóri innilega til hamingju með þennan árangur