ÍBV á 9 fulltrúa
Æfingahelgi í hæfileikamótun HSÍ og Bláa lónsins verður helgina 1. - 3. júní nk. en hóparnir samanstanda af stúlkum og piltum fæddum árið 2004. Íþróttastjóri HSÍ, Einar Guðmundsson, hefur umsjón með verkefninu en ÍBV á 9 fulltrúa í þessum hóp.
Stúlkur:
Elísa Elíasdóttir, Helena Jónsdóttir, Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Thelma Sól Óðinsdóttir, Þóra Björg Stefánsdóttir,
Drengir:
Andrés Marel Sigurðsson, Birkir Haraldsson, Elmar Erlingsson, Karl Jóhann Örlygsson
ÍBV óskar þessum efnilegu iðkendum innilega til hamingju með þennan árangur.