Haraldur Þorvarðarson og Sigurgeir Jónsson þjálfarar U-18 ára landsliðs kvenna hafa valið tvo hópa leikmanna fæddar 2000 og 2001.
Æfingarnar verða helgina 11.-13. maí n.k. í Íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ.
Þeir félagar völdu þrjá leikmenn ÍBV í hóp 2. Leikmennirnir eru þær Eva Aðalsteinsdóttir, Sara Sif Jónsdóttir og Hafrún Dóra Hafþórsdóttir.
ÍBV óskar þessum efnilegu handboltastúlkum innilega til hamingju með þennan árangur