Er í Þýskalandi með U-17
Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U-16 kvenna, hefur valið Clöru Sigurðardóttur í lokahóp til þátttöku í UEFA Development Tournament U16 kvenna. Mótið fer fram í Klaipeda í Litháen dagana 8. - 13. apríl nk.
Það er því nóg að gera hjá hinni ungu og efnilegu Clöru, en hún er stödd í Þýskalandi með U-17 ára landsliðinu þar sem þær munu spila í milliriðli undankeppni EM 2018, sem fer fram í Neubrandenburg 20. - 29. mars.
ÍBV óskar Clöru innilega til hamingju með þennan árangur.