Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari U-21 landsliðsins í knattspyrnu valdi þá Felix Örn Friðriksson og Dag Austmann í æfingahóp sem kemur saman í Reykjavík um næstu helgi. Þeir félagar hafa átt fast sæti í þessum hóp og verður gaman að fylgjast með þessum efnilegu piltum á Hásteinsvelli í sumar.
Þess má til gamans geta að eyjamaðurinn Tómas Ingi Tómasson er aðstoðarþjálfari liðsins.
ÍBV óskar þeim Felix Erni og Degi innilega til hamingju með þennan árangur.