Heimir Ríkarðsson landsliðsþjálfari U-17 hjá HSÍ hefur valið tvo hópa fyrir verkefni sumarsins en liðið tekur þátt í European Open í Svíþjóð í byrjun júlí og Ólympíuhátið Evrópuæskunnar í lok júlí.
Heimir valdi frá ÍBV Pál Eiríksson í Ólympíuhópinn og Ívar Loga Styrmisson í Evrópuhópinn. Báðir eru þessir peyjar mjög efnilegir og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.
ÍBV óskar peyjunum innilega til hamingju með þennan árangur