Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U-19 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu valdi í dag lokahóp sinn fyrir milliriðil Evrópukeppni landsliða þar sem Ísland leikur í riðli með Þýskalandi, Póllandi og Sviss. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir var valin frá ÍBV en hún á ekki langt að sækja knattspyrnuhæfileika sína því Beta í íþróttahúsinu og Hermann eru amma hennar og afi.
Ingibjörg gekk til liðs við ÍBV í vetur og hefur unnið sér fast sæti í meistaraflokki. Ingibjörg var á laugardag valin maður leiksins gegn FH.
ÍBV óskar Ingibjörgu innilega til hamingju með þennan árangur