Bjarni Fritzson þjálfari u-19 ára landsliðs karla hefur valið hóp til æfinga helgina 19. - 21. maí í Austurbergi. Þetta er fyrsti hluti af undirbúningi liðsins fyrir HM í Georgíu sem fram fer í ágúst.
Bjarni valdi tvo leikmenn ÍBV i hópinn en það eru þeir, Elliði Snær Viðarsson og Ágúst Emil Grétarsson. Báðir hafa þessir leikmenn staðið sig mjög vel í vetur og eru vel að þessu vali komnir.
ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur