Eyjólfur Sverrisson og Tómas Ingi Tómasson völdu í dag úrtakshóp fyrir U-21 landsliðs Íslands í knattspyrnu sem æfir um næstu helgi í Reykjavík. Þeir félagar völdu Arnór Gauta Ragnarsson frá ÍBV í hópinn. Arnór kom til ÍBV frá Breiðablik en Arnór þykir mjög efnilegur sóknarmaður og hefur þegar látið til sín taka með ÍBV.
ÍBV óskar Arnóri innilega til hamingju með þennan árangur