Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu valdi Sigríði Láru Garðarsdóttur í lokahóp sinn fyrir Algarve Cup sem fram fer í Portúgal dagana 1-8.mars. Ísland leikur þar fjóra leiki, þann fyrsta gegn Noregi og síðan gegn Japan og Spáni. Síðasti leikurinn er svo um sæti en í fyrra lék Íslands til úrslita í mótinu.
ÍBV óskar Sísí Láru innilega til hamingju með þennan árangur