Jörundur Áki Sveinsson landsliðsþjálfari U-17 ára landsliðsins í knattspyrnu valdi í dag Clöru Sigurðardóttur í lokahóp liðsins til þátttöku í UEFA Development Tournament U17 kvenna sem fram fer í Edinborg, Skotlandi, 19.-25.febrúar 2017. Ísland leikur þar þrjá leiki.
Clara sem er mjög efnileg hefur heldur betur látið að sér kveða með meistaraflokki nú í vetur og því vel að þessu komin.
ÍBV óskar Clöru innilega til hamingju með þennan árangur