Kári Garðarsson landsliðsþjálfari U-19 ára landsliðs Íslands í handbolta valdi í dag 16 leikmenn til að leika fyrir Íslands hönd í undankeppni EM. Kári valdi tvo leikmenn frá ÍBV, þær Söndru Erlingsdóttur og Þóru Guðnýju Arnardóttur. Riðill Íslands verður leikin á Spáni dagana 17-19.mars. Íslands leikur í riðli með heimstúlkum, Rúmeníu og Litháen. Tvö lið fara áfram í lokakeppnina og eru möguleikar Íslands taldir miklir.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur