Dean Martin nýráðinn landsliðsþjálfari U-16 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu valdi í dag tvo leikmenn ÍBV í úrtakshóp sem æfir saman helgina 27-29.janúar í Reykjavík. Dean valdi þá Arnar Breka Gunnarsson og Heiðar Óla Guðmundsson í hópinn.
Dean mun skoða fleirri leikmenn á næstunni en hann kemur til eyja í næsta mánuði með hæfileikamótun KSÍ.
ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur.