Kvennalið ÍBV í knattspyrnu fékk í gær mjög góðan liðsstyrk þegar markvörðurinn Adelaide Gay gekk til liðs við félagið. Adelaide er 27.ára og hefur spilað í efstu deild í Svíþjóð með liði Kvanseden. Adelaide mun þjálfa markverði ÍBV þann tíma sem hún mun leika hér í Eyjum.
Þá hefur ÍBV einnig samið við Katie Kraeutner 22.ára sem leikur sem kantmaður en getur einnig leikið á miðjunni.
ÁFRAM ÍBV