Úlfar Hinriksson landsliðsþjálfari U-16 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu hefur valið þrjá leikmenn ÍBV í 32 manna úrtakshóp sem æfir saman helgina 9-11.desember. Úlfar valdi þær Hörpu Valey Gylfadóttur, Clöru Sigurðardóttur og Lindu Björk Brynjarsdóttur í hópinn.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.