Föstudaginn 2.desember stendur ÍBV ásamt KSÍ fyrir dómaranámskeiði í knattspyrnu. Námskeiðið verður haldið í Týsheimilinu og hefst kl. 15.10 og stendur í tvo tíma. Magnús Már Jónsson dómarastjóri KSÍ stjórnar námskeiðinu fyrir hönd KSÍ. Námskeiðið er opið öllum sem áhuga hafa á því að næla sér í dómararéttindi. Ekki þarf að forskrá sig heldur er mæting í Týsheimilið kl. 15.00
ÁFRAM ÍBV