Sigríður Lára Garðarsdóttir undirritaði í gær nýjan samning við ÍBV. Sísí Lára sem heldur til Danmerkur í nám á næstunni mun leika með ÍBV á næsta leiktímabili þrátt fyrir að flest önnur félög úrvalsdeildarinnar hafi sóst eftir hennar kröftum.
Sísí Lára átti skínandi sumar fyrir ÍBV og gerði 5 mörk og var þrumufleygur hennar af 30 metra færi gegn KR á Hásteinsvelli eitt af mörkum sumarsins.
ÍBV fagnar þessum samningi enda alltaf gott að vita þegar leikmenn halda tryggð við sitt uppeldisfélag.
Í leiðinni var skrifað undir samstarfssamning við Einsa Kalda en Einar Björn og Bryndís hafa staðið þétt við bakið á knattspyrnu kvenna.
ÁFRAM ÍBV