Fimm leikmenn ÍBV á æfingar hjá U-18 ára hjá HSÍ

04.apr.2016  09:44

Þeir Kristján Arason og Einar Guðmundsson þjálfarar U-18 ára landsliðs Íslands í handbolta hafa valið æfingahóp sem kemur saman um næstu helgi.  Þeir félagar völdu fimm leikmenn ÍBV en það eru, Andri Ísak Sigfússon, Elliði Snær Viðarsson, Logi Snædal Jónsson, Daníel Örn Griffin og Friðrik Hólm Jónsson.  Allir eru þessir drengir í fremstu röð í þessum aldursflokki og eiga sannarlega skilið þetta tækifæri.

ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur