Minningarathöfn um okkar ástkæra leikmann og vin, Abel Dhaira, verður haldin í Landakirkju hér í Vestmannaeyjum, sunnudaginn 3.apríl kl. 16.00.
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum verður Abel fluttur til Uganda og jarðsettur þar. Knattspyrnuráð karla ÍBV, í samráði við fjölskyldu Abels, vill samt sem áður gefa þeim fjölmörgu Eyjamönnum og öllum öðrum sem kynntust honum, tækifæri til að kveðja Abel á viðeigandi hátt og var því ákveðið að halda minningarathöfn hér í Eyjum. Athöfnin er að sjálfsögðu öllum opin.
ÍBV, fjölskylda Abels og vinir, ítreka þakkir sínar til allra þeirra fjölmörgu sem studdu Abel í baráttunni. Guð blessi ykkur öll.