Í síðustu viku afhentu forsvarsmenn Orkunnar í Vestmannaeyjum afrakstur söfnunar sem var tileinkuð Abel Dhaira.
Allan febrúarmánuð lögðu Viðskiptavinir Orkunnar í Vestmannaeyjum málefninu lið með eldsneytiskaupum sínum, en Orkan hét 2 kr. af hverjum seldum lítra til stuðnings Abel. Alls söfnuðust hjá Orkunni 100.000 kr og hét Skeljungur sömu fjárhæð í þessa verðugu fjáröflun.
ÍBV íþróttafélag vill þakka Orkunni og viðskiptavinum þeirra fyrir rausnarlegt framlag til söfnunarinnar sem og þeim fjölmörgu sem hafa lagt hönd á plóginn.