Felix Örn Friðriksson var valinn til að taka þátt í æfingum vegna undirbúnings U17 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu fram að milliriðlum sem fram fara í Frakklandi í mars/apríl.
Æfingarnar fara fram undir stjórn Halldórs Björnssonar, þjálfara liðsins.
Ísland spilar við Frakkland, Grikkland og Austurríki í milliriðlinum. Felix hefur verið í byrjunarliði liðsins í undanförnum leikjum og verður gaman að fylgjast með honum kljást við þetta verkefni.
ÍBV óskar Felix Erni innilega til hamingju með þennan árangur