Rakel Dögg Bragadóttir hefur tekið að sér þjálfun u-14 landsliðs kvenna og hefjast æfingar um næstu
helgi, 18. – 20. mars.
Stór hópur hefur verið valinn í samráði við þjálfara í þessum aldursflokki. Frá IBV voru valdar alls 8 leikmenn sem eru þær, Andrea Gunnlaugsdóttir, Birta Lóa Styrmisdóttir, Linda Brynjarsdóttir, Harpa Valey Gylfadóttir, Clara Sigurðardóttir, Helga Stella Jónsdóttir, Bríet Ómarsdóttir og Mía Rán Guðmundsdóttir. ÍBV er með langbesta lið landsins í þessum aldursflokki og því eðlilegt að ÍBV eigi þetta marga fulltrúa.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.