Þrjár frá ÍBV á æfingar hjá HSÍ

07.mar.2016  13:50

Þeir Halldór Stefán Haraldsson og Jón Gunnlaugur Viggósson þjálfarar U-18 ára landsliðs Íslands í handbolta völdu í dag 50 manna æfingahóp sem æfir saman n.k mánudag í Reykjavík.  Þeir félagar völdu frá ÍBV þær Ástu Björt Júlúsdóttir, Þóru Guðnýju Arnarsdóttur og Sirrý Rúnarsdóttur.  Stúlkurnar hafa látið vel af sér kveða í vetur og verður því gaman að sjá hvort þær komist í lokahóp liðsins.

ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.