ÍBV kynnir nýjan leikmann og samstarfssamning við Gott veitingahús

07.mar.2016  13:38

Um helgina kynnti kvennalið ÍBV til sögunnar norska leikmannin Lisa Marie Woods. 

Lisa kemur til liðsins eftir að hafa leikið í Kasakstan síðustu misseri en Lisa á að baki 35 landsleiki fyrir Noreg ásamt því að hafa leikið með mjög sterkum liðum á sínum ferli.    ÍBV væntir mikils af Lisu sem kemur til með að miðla reynslu sinni til leikmanna liðsins.  ÍBV undirbýr sig af krafti fyrir átök sumarsins.  Liðið er búið að leika einn leik í Lengjubikarnum gegn Fylki sem vannst 6-2.  N.k sunnudag leikur liðið svo við fyrnasterkt lið Breiðabliks.

Ásamt því að kynna Lisu til leiks þá undirritaði Gott veitingahús og ÍBV samstarfssaming sín á milli en Gott er þekkt fyrir hollan og góðan mat.  Í tilefni dagsins bauð Gott viðstöddum uppá dýrindismáltið.

ÁFRAM ÍBV