Júlíana og Díana Helga á æfingar hjá KSÍ

26.feb.2016  11:49

Í dag valdi Þórður Þórðarsson þjálfari U-19 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu þær Júlíönu Sveinsdóttur og Díönu Helgu Guðjónsdóttur til æfinga með liðinu um næstu helgi.  Þær Júlíana og Díana hafa verið að leika vel með meistaraflokki félagsins í vetur og fá því kærkomið tækifæri til að sýna hvað í þeim býr um næstu helgi.  Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll.

ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur