Sigríður Lára Garðarsdóttir æfði um síðastliðna helgi með A-landsliði kvenna í knattspyrnu. Æfingarnar voru liður í undirbúningi liðsins fyrir vináttulandsleik gegn Pólverjum ytra þann 14.febrúar. Sísí Láru gekk mjög vel á æfingunum sem varð til þess að Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari valdi Sísí Láru í lokahópinn. Þetta eru frábærar fréttir fyrir ÍBV en þess má til gamans geta að Elísa Viðarsdóttir var einnig valin í hópinn.
ÍBV óskar Sísí Láru innilega til hamingju með þennan árangur.