Einar Jónsson hefur valið 21 leikmann til æfinga milli jóla og áramóta. Einar valdi tvær stúlkur frá ÍBV, þær Erlu Rós Sigmarsdóttur og Díönu Dögg Magnúsdóttur.
Fyrsta æfingin verður 26. desember og verður æft til og með 30. desember, nánari upplýsingar um æfingatíma koma síðar.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur