Fréttatilkynning frá knattspyrnuráði

02.des.2015  10:51

Knattspyrnuráð ÍBV hefur gengið frá samningum til 3ja ára við heimamennina, Óskar Elías Zöega Óskarsson og Hafstein Gísla Valdimarsson sem leikmenn mfl. karla ÍBV í knattspyrnu. 

Óskar Elías og Hafsteinn Gísli eru eins og allir vita uppaldir hjá félaginu og eru með þessu að endurnýja samninga sína við félagið.

Óskar Elías er 20 ára og hefur verið hluti af leikmannahópi mfl. karla sl. 3 ár.  Hann á að baki 9 leiki með liðinu í deild og bikar. Seinni hluta tímabilsins 2014 lék hann 8 leiki með BÍ/Bolungarvík og skoraði þar eitt mark.  Í sumar lék hann svo 7 leiki með liði KFS seinni hluta tímabilsins, og skoraði þar 2 mörk.

Hafsteinn Gísli er 19 ára og hefur verið hluti af leikmannahópi mfl. karla sl. 2 ár, og á að baki einn leik með liðinu.  Hafsteinn lék sl. sumar 14 leiki með KFS í 3. deild karla og öðlaðist þar mikla reynslu fyrir komandi ár.

ÍBV sér þá félaga fyrir sér í þeirri Eyjastemmingu sem lið ÍBV á að byggja á næstu árin, og í því verkefni að koma ÍBV í fremstu röð.  Þeir félagar verða hluti af þeim hópi leikmanna, þjálfara og knattspyrnuráðsmanna sem munu sameiginlega í góðu samstarfi efla ÍBV og búa til öflugt lið.

Knattspyrnuráð ÍBV lýsir yfir mikilli ánægju með að þessir Eyjapeyjar séu áfram tilbúnir í slaginn með ÍBV og væntir mikils af þeim í framtíðinni.

ÁFRAM ÍBV, alltaf og alls staðar.