Valinn hefur verið hópur U-18 ára landsliðs karla sem tekur þátt í Sparcassen cup í Mertzig í Þýskalandi milli jóla og nýárs. Liðið kemur saman til æfinga 20.-22 des. n.k. Þjálfararnir Kristján Arason og Einar Guðmundsson völdu fjóra leikmenn ÍBV í hópinn. Þetta eru þeir, Logi Snædal, Elliði Viðarsson, Friðrik Hólm og Andri Ísak Sigfússon. Frábært fyrir ÍBV að svona margir peyjar séu valdir úr sama árgangi en þarna eru miklir sigurvegarar á ferð.
ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur