Þeir Halldór Stefán Haraldsson og Jón Gunnlaugur Viggósson hafa valið 16 manna hóp hjá U-18 ára landsliði Íslands í handbolta sem æfir 23.-29. nóvember. Þeir félagar völdu Þóru Guðnýju Arnarsdóttur frá ÍBV í hópinn. Þóra Guðný er vel að þessu vali komin enda búin að vaxa mikið sem leikmaður og staðið sem frábærlega.
Æfingarnar eru hluti af undirbúningi liðsins fyrir æfingamót í Póllandi 17.-21. desember.
ÍBV óskar Þóru Guðnýju innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.