Á morgun kl. 18.00 tekur ÍBV á móti Breiðablik á Hásteinsvelli í Pepsídeild kvenna. Blikastúlkur verma toppsætið þessa stundina en Eyjastúlkur eru ákveðnar í því að leggja þetta firnasterka lið af velli. Eyjamenn mætum á Hásteinsvöll og hvetjum ÍBV til sigurs.
Knattspyrnuráð kvenna og leikmenn kvennaliðs ÍBV þakka innilega þann gríðarlega stuðning sem liðið fékk í síðasta leik. Með svona stuðningi getur liðið náð langt í Pepsídeildinni.
ÁFRAM ÍBV