Á morgun kl. 18.00 mætir kvennalið ÍBV liði Þróttar í fyrsta heimaleik sumarsins á Hásteinsvelli. ÍBV hefur leikið tvo útileiki til þessa, gerðu jafntefli á Akureyri og töpuðu svo naumlega fyrir liði Selfoss á síðustu sekúndum leiksins 3-2. Liðið hefur því heimsótt tvo erfiða útivelli en fær nú loks heimaleik og stefnir á sigur á Hásteinsvelli á morgun.
ÍBV hvetur alla Eyjamenn að mæta á Hásteinsvöll og hvetja liðið til sigurs.
ÁFRAM ÍBV