Miðvikudaginn 13. maí verða vetrarlok félagsins í Höllinni. Húsið opnar kl. 20:00 og mun borðhald hefjast kl. 20:30. Eins og undanfarin ár mun Einsi Kaldi sjá um að metta gesti ÍBV íþróttafélags.
Leikmenn handboltans (3. flokk og upp úr), starfsmenn og stjórnarmenn félagsins fá frítt inn og niðurgreiðir félagið niður fyrir aðra gesti þannig að hægt er að kaupa miða á kvöldið í Týsheimilinu 7. til 11. maí fyrir aðeins 2500 kr.