Páll Eiríksson markvörður 5.flokks var í dag valin ásamt 30 öðrum drengjum til æfinga með U-15 ára landsliði Íslands í handbolta. Æfingarnar fara fram í vikunni fyrir Páska í Garðabæ.
Þjálfarar liðsins eru Heimir Ríkharðsson og Magnús Kári Jónsson.
ÍBV óskar Palla innilega til hamingju með þennan árangur.