Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla í knattspyrnu, valdi í dag Gunnar Þorsteinsson í lokahóp liðsins sem mætir Rúmenum í vináttulandsleik 26. mars næstkomandi. Leikið verður í Targu Mures en þetta er í þriðja skiptið sem þjóðirnar mætast í þessum aldursflokki.
Þessi leikur er liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM 2017 en Ísland hefur leik þar gegn Makedóníu á heimavelli, 11. júní. Aðrar þjóðir í riðli Íslands eru: Frakkland, Norður Írland, Skotland og Úkraína.
ÍBV óskar Gunnari innilega til hamingju með þennan árangur.