Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu valdi í dag Sigríði Láru Garðarsdóttur til æfinga með A-landsliðið Íslands. Æfingarnar fara fram um næstu helgi í Reykjavík. Þetta er í þriðja sinn sem Sísí Lára er kölluð til æfinga með liðinu.
ÍBV óskar Sísí Láru innilega til hamingju með þennan árangur.