Þeir Gunnar Þorsteinsson, Jón Ingason og Aron Bjarnason voru í dag allir valdir til æfinga með úrtakshóp U-21 árs landsliðsins í knattspyrnu. Þjálfarar liðsins eru þeir Eyjólfur Sverrisson og eyjamaðurinn Tómas Ingi Tómasson. Æfingarnar fara fram um næstu helgi bæði á Akranesi og í Reykjavík.
ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur.